Alþjóðlega hárvörumerkið Harklinikken hefur opnað fyrsta útibú sitt í Reykjavík að Laugavegi 15 þar sem Michelsen úrsmiður var áður til húsa í fjölmörg ár. Þar verður bæði starfrækt verslun og meðferðarstofa. Harklinikken veitir meðferðir við hárlosi kvenna og karla og hárheilbrigði. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Við erum í skýjunum með opnun útibúsins á Laugavegi í hjarta Reykjavíkur,“ segir Lars Skjoth, stofnandi Harklinikken og yfirmaður rannsókna og þróunar hjá fyrirtækinu. ,,Við höfum starfað á Íslandi í þrjú ár og viðtökurnar hafa verið ótrúlega jákvæðar, þúsundir Íslendinga eru nú í meðferð hjá okkur. Þetta útibú sem sameinar verslun og persónulega stofu er spennandi tilraun fyrir okkur því við getum hugsað okkur að færa út kvíarnar í smásölu víðsvegar um heim.“

Harklinikken hefur skapað sér orðspor á meðal vönduðustu hárþjónusta í heiminum og þessi nýja hugmyndafræði er sú fyrsta hjá vörumerkinu. Áður hefur vörumerkið takmarkað aðgengi að vörum sínum við þá sem vísað hefur verið í meðferð við hárlosi, sem felur í sér ákveðin sjampó, hárnæringu og seyði sem sniðið er að hverjum og einum viðskiptavin. Hjá nýja útibúinu geta íslenskir neytendur og ferðamenn fræðst um Harklinikken og prófað vörur þess án þess að hafa fengið ráðgjöf.

Í versluninni munu hársérfræðingar Harklinikken starfa, allir þjálfaðir í að finna vandamál í hári og hársverði og þjónustu við viðskiptavini. Þessir sérfræðingar geta beint viðskiptavinum að vörum sem henta hverju sinni og byggt þannig á hefð Harklinikken fyrir einstaklingsmiðaðri og persónulegri þjónustu, sem skapað hefur vörumerkinu sérstöðu á markaði. Auk þess að fræða neytendur um vöruna geta þeir einnig veitt þeim ráðgjöf sem líta við án þess að hafa bókað og hafa áhuga á sérvalinni meðferð við hárþynningu í einu af meðferðarherbergjum nýja útibúsins.

Í 186 fermetra rýminu er einföld norræn lúxushönnun í hávegum höfð. Rýmið var hannað og handgert fyrir þetta útibú af arkitektum í Kaupmannahöfn. Þar er til dæmis að finna ítalskan marmara og danska eik."