Okkar einstaka Hair Gain Extract er hornsteinn
Hårklinikken-aðferðarinnar. Extract-ið er unnið er náttúrulegum afurðum
sem er ætlað til daglegrar notkunar, er sérsniðið að þörfum hvers og eins
og styður við heilbrigðan hársvörð ásamt sterkari og þykkari hári.
Í yfir 30 ár hefur byltingarkennda Extract lausnin okkar hjálpað yfir 100.000
viðskiptavinum við að ná hárs- og hársvarðarmarkmiðum sínum. Nú er komið
að þér!

Uppgötvaðu mátt sérsniðinna lausna
Hársérfræðingar Hårklinikken útbúa hverja blöndu af Extract svo hún sé sniðin að þínum sérstöku þörfum.
Heilbrigðari hársvörður
Næring og vellíðan
Jafnvægi í örveruflóru hársvarðar
Mikilvægt fyrir heilbrigðan hárvöxt
Náttúruleg innihaldsefni
Hágæða vörur
Styrkur hársins
Sterkara og minna viðkvæmt fyrir sliti
Hárvöxtur
Virkur og heilbrigður vöxtur
Sterkari hársvörður
Minna hárlos og heilbrigðara hár
Reynt og prófað
- 100%
-
þátttakenda upplifðu meiri þekju i hársverði og aukningu í gæðum hársins.*
- 97%
-
þátttakenda voru sammála um að hárlína þeirra virtist fyllri og að hárið virðist heilbrigðara.*
- 94%
-
þátttakenda þótti hárið þykkara og hárvöxtur hraðari en áður.*
*Byggt á 120 daga rannsókn frá þriðja aðila með 36 þátttakendum sem notuðu Hair Gain Extract og Stabilizing Scalp sjampó
Allar Extract blöndur Hårklinikken eru:
Virk Efni

BURNI RÓT
Hamlar myndun DHT

MARÍUGULL
Róar bólgur og ertingu

EPLI
Stuðlar að auknu blóðflæði

SANDALVIÐUR
Gegn flösu

KÚAMJÓLK
Mýkir og hreinsar varlega

STERÓLAR*
Bæta gæði hársins

TANNÍN
Dregur úr sliti

FITUSÝRUR
Stjórna fituframleiðslu
*náttúrulega til staðar
"Engir tveir hársverðir eða hár eru eins. Þess vegna er hvert Extract aðlagað að
þinni einstöku líffræði.“
.
LARS SKJØTH
STOFNANDI HÅRKLINIKKEN

Hvernig getum við hjálpað?
Hair Gain Extract frá Hårklinikken getur verið gagnlegt fyrir fjölbreyttan hóp einstaklinga, þar á meðal þá sem upplifa hárlos vegna neðangreindra áhættuþátta:
- Streita
- Umhverfisáhrif
- Genatengsl
- Næringarskortur
- Hormónasveiflur
- Ákveðnar tegundir af Alopecia
Það er mikilvægt að ráðfæra sig við hársérfræðinga okkar til að tryggja að þú fáir rétta aðstoð á þinni vegferð.
Ef það kemur í ljós, í einstaka tilvikum, að við getum ekki unnið með viðskiptavini, er ráðgjöfin þér að kostnaðarlausu.
Árangurssögur
Hér getur þú hlustað á árangurssögur viðskiptavina Hårklinikken.

Hair Gain Extract
Stofnandi og aðalrannsakandi Hårklinikken, Lars Skjøth, glímdi við alvarleg hársvarðar vandamál á unglinsárum sínum. Eftir margra ára lyfjameðferðir ávísaðar af húðlæknum fór hann að kanna náttúrulegri valkosti, samhliða því að dýpka þekkingu sína á jurtalækningum, líffræði hárs og hársvarðar, næringu og almennum húðlækningum.
Eftir nokkur ár hóf Lars að þróa sitt fyrstu einföldu blöndu úr náttúrulegum innihaldsefnum ásamt mildu sjampói. Fyrstu niðurstöðurnar voru vægar en engu að síður nægilega lofandi til að halda áfram prófunum sínum á vinum, fjölskyldu og öðrum sjálfboðaliðum.
Með tímanum leiddu betri niðurstöður til aukins áhuga á frekari rannsóknum, sem hvatti Lars til að auka þekkingu sína enn frekar. Hann færði sig yfir í klínískar og rannsóknarstofutengdar rannsóknir og stofnaði sína fyrstu klíník og rannsóknarstofu árið 1992.
Eftir þrjátíu ára rannsóknir og nýsköpun er Hårklinikken leiðandi afl í greiningu og sérsniðinni umhirðu fyrir hár og hársvörð. Með því að sameina aldagamla visku og nútímavísindi býður byltingarkennda Hair Extract-ið uppá náttúrulega og lyfjalausa leið til að örva hárvöxt – og það með raunverulegum árangri.
Reynslusögur viðskiptavina
Einkunn: 4,47 af 5 byggt á 3301 umsögn

Algengar spurningar:
-
Olíulaus formúla unnin úr sérvöldum náttúrulegum innihaldsefnum og lífrænum þáttum úr kúamjólk.
-
Flestir viðskiptavina okkar taka eftir meiri glans, auknum gæðum og meiri þéttleika hársins innan örfárra vikna eftir að þeir byrja að nota Hair Gain Extract.
-
Svo hægt sé að sérhanna Hair Gain Extract-ið að þínum einstöku þörfum.
-
Við getum hjálpað flestum þeim sem vilja bæta gæði hársins.
-
Já, allar okkar vörur eru öruggar til notkunar á meðgöngu og brjóstagjöf.