Algengar Spurningar
Hair Gain Extract
Hair Gain Extract er meðferð sem beinist að hársverði og hársekkjum. Hún er hönnuð til að hámarka aðstæður fyrir hárvöxt, þar á meðal að auka gljáa, gæði og þéttleika hársins. Með því að bæta heilbrigði hársvarðar og örva endurvöxt skapar hún kjöraðstæður fyrir hágæða og varanlegan hárvöxt.
Áberandi aukning á hárvexti má oft sjá á aðeins 2–3 mánuðum með reglulegri notkun. Flestir upplifa 30–70% bætingu á gæðum og/eða magni hársins. Til að fylgjast markvisst með framförum og styðja þig í að ná þínum markmiðum í hárumhirðu mælum við með að bóka ráðgjöf hjá einum af Hársérfræðingum okkar – annað hvort áður en þú byrjar að nota Extract eða innan fyrsta mánaðarins eftir að þú hefur lokið hárprófinu á heimasíðu okkar.
Ráðgjöf hjá Hårklinikken gefur okkur tækifæri til að safna upplýsingum um lífsstíl þinn, núverandi venjur í hárs- og hársvarðarumhirðu og þann árangur sem þú stefnir að. Við tökum einnig grunnmyndir af hársverði og hári til að fylgjast með framförum.. Ef þú hefur tök á að heimsækja okkur á klíníkina mun Hársérfræðingur framkvæma ítarlega greiningu á hársverðinum til að meta núverandi ástand hans og það þynningarmynstur sem þú ert að upplifa, með hjálp t.d. stækkunarmyndavéla sem eru sérstaklega hannaðar fyrir hársvörð. Við lítum á Hårklinikken-aðferðina sem þrískipta heildarlausn sem samanstendur af þremur lykilþáttum. 1. GREINING - Sérfræðingar okkar meta heilsu hársvarðar og hárs til að útbúa meðferðaráætlun sem er sérsniðin að líffræði þinni, lífsstíl og umhverfi. Að því loknu tökum við grunnmyndir sem gera okkur kleift að mæla árangur þinn á nákvæman og markvissan hátt. 2. MEÐFERÐ - Við nýtum upplýsingarnar sem safnað er til að sérsníða Extract blöndu fyrir þig og setja saman persónubundna rútínu með okkar einstöku hreinsi- og rakagefandi vörum sem styðja við og auka áhrif meðferðarinnar. 3. HÁMARKS ÁRANGUR - Eftirfylgnitímar gera okkur kleift að fylgjast náið með framförum þínum og taka mið af breytingum. Við aðlögum Extract blönduna og meðferðaráætlunina eftir þörfum svo hún þróist í takt við þarfir þínar og tryggi sem bestan árangur.
Reglusemi er lykilatriði þegar kemur að notkun Hair Gain Extract. Reglulegir viðtalstímar eru nauðsynlegir, þar sem þeir gera sérfræðingum okkar kleift að meta árangur þinn, veita stuðning eftir þörfum og aðlaga samsetningu Hair Gain Extract í samræmi við það. Í hverri eftirfylgniráðgjöf fylgjumst við með framförum þínum, förum yfir grunnmyndir og stillum Hair Gain Extract blönduna út frá notkun, árangri, núverandi þörfum hárvaxtar og ástandi hársvarðar.
Hver Hair Gain Extract er sérsniðinn fyrir hvern og einn, og er blandan fínstillt yfir notkunartímabilið til að styðja við breyttar þarfir og markmið. Flestar blöndur innihalda einkaleyfisvarin innihaldsefni sem hafa verið þróuð á þremur áratugum og unnin úr klóklapparót, morgunfrú, eplum, sandelvið og kúamjólk, ásamt náttúrulega fyrirliggjandi sterólum, tannínum, flavónóíðum, jurtaolíum og fitusýrum úr plönturíkinu. Blandan þróast í samræmi við notkun og viðbrögð þínum við henni til að tryggja að hún henti sem best líffræði hárs og hársvarðar. Breytingar í lífinu geta einnig haft áhrif á hárið, og sumir þurfa meira eða minna af ákveðnum innihaldsefnum á mismunandi tímabilum ævinnar. Þess vegna er blandan stöðugt aðlöguð til að hámarka árangur.
Hair Gain Extract er sérsniðin og handblönduð fyrir hvern viðskiptavin að lokinni fyrstu ráðgjöf. Blandan er svo stöðugt aðlöguð út frá framförum, ástandi hársvarðar, daglegri rútínu, endurgjöf og fleiru. Með yfir 33 ára þróun að baki á einstökum innihaldsefnum Hair Gain Extract er markmiðið að skapa bestu mögulegu aðstæður fyrir aukin hárgæði og þéttleika – svo hárið verði sterkara, fyllra og heilbrigðara í heild. Í samspili við sérhæfð sjampó og rakagefandi vörur frá Hårklinikken vinnur Extract-ið að því að hámarka skilyrði fyrir öflugan hárvöxt. Það felur meðal annars í sér að jafnvægisstilla örumhverfi hársvarðarins, styðja við heilbrigt bólgusvar og skapa kjöraðstæður fyrir virkni hárfrumna.
Ég hætti noktun á Hair Gain Extract Þeim mun stöðugri sem þú ert, þeim mun meiri aukningu muntu sjá á gæðum hársins og heilsu hársvarðarins. Ef þú ákveður að hætta notkun sérsniðna Hair Gain Extract þíns munu jákvæð áhrif smám saman hverfa, og ástand hárs og hársvarðar mun smám saman ganga til baka í það ástand sem það var í áður en þú byrjaðir að nota Extract-ið.
Ef þetta gerist af og til mun það hafa hverfandi neikvæð áhrif á hárið. Hins vegar, ef þú notar Hair Gain Extract aðeins á annan hvorn dag, er líklegur árangur í hárvexti um 33% af því sem þú gætir náð með daglegri notkun. Þeim mun reglulegri notkun sem þú ert í, þeim mun betri verður heilsa hársins og hársvarðarins og þá sérðu betri árangur í heild. Hugsaðu um Hair Gain Extract eins og daglega umhirðu fyrir heilsu hár og hársvörð, á svipaðan hátt og þú burstar tennurnar eða hreinsar andlitið þitt daglega.
Hair Gain Extract okkar hefur stutt við hárvöxt viðskiptavina í yfir 33 ár með því að:
- Bæta heilsu hársvarðar með því að jafnvægisstilla pH-gildi hans og koma örveruflóru að jafnvægi.
- Styrkja varnarhjúp og rakastig hársvarðar, sem eykur þol hans gegn utanaðkomandi álagi sem getur valdið hárlosi.
- Örva hársekki sem farið hafa í dvala, á sama tíma og virkni virkra hársekkja er hámarkað.
- Hámarka skilyrði til að draga úr hárlosi, bæta gæði og þéttleika hárs og minnka hárbrot með því að endurheimta hárvaxtarhringrás og styrkja bæði hársekki og hárstrá.
Ólíulaus formúlan er gerð úr bestu einkaleyfisvörðu innihaldsefnum unnum úr plöntum, ásamt lífrænum efnum úr kúamjólk.
Hair Gain Extract inniheldur einstaka blöndu af einkaleyfisvörðum innihaldsefnum unnum úr klóklapparót, morgunfrú, epli, sandelvið og kúamjólk. Auk þess inniheldur hún náttúrulega steróla, tannína, flavónóíða, jurtaolíur og fitusýrur sem finnast í ýmsum plöntum. Nákvæm innihaldsefni og styrkur þeirra getur verið mismunandi milli viðskiptavina þar sem að hver flaska er sérsniðin.
Við trúum á sérkenni og fjölbreytileika mannfólks. Engir hársverðir eða hár er eins, og þess vegna er hver Hair Gain Extract sérsniðin eftir þínum þörfum. Fyrsta ráðgjöf og hárprófin gera okkur kleift að meta hvort þú munir hafa gagn af notkun Extractsins. Ef við teljum að við getum hjálpað þér munum við handblanda Hair Gain Extractið út frá þínum þörfum. Hársérfræðingar okkar eru sérfræðimenntaðir í að meta einstaklingsbundnar þarfir þínar og tryggja að þú náir sem besta árangri. Á ráðgjafartíma tökum við einnig eftir öllum mikilvægum upplýsingum sem hjálpa okkur að búa til nákvæmasta mögulega formúlu fyrir þig. Þú getur bókað tíma hér. Ef þú vilt ekki bóka ráðgjöf hvetjum við þig til að taka hárgreininguna okkar. Hún þjónar sem grunnviðmiðun og hjálpar okkur að tryggja að rétt Extract-formúla sé sérsniðin fyrir þig til að ná þínum markmiðum. Hins vegar hvetjum við enn fremur til að fá grunnráðgjöf fyrir sem bestan árangur.
Hair Gain Extract hentar öllum sem upplifa þynningu hárs, hvort sem um er að ræða karla eða konur – óháð kyni, aldri eða uppruna. Við getum hjálpað flestum að hámarka skilyrði fyrir betri hárgæðum, styðja við vöxt og heilbrigði hársins.
Það er afar mikilvægt að ráðfæra sig við lækni til að ganga úr skugga um hvort meðferðir eða lyf sem þú notar kunni að telja hárlos sem mögulega aukaverkun. Þúsundir viðskiptavina um allan heim hafa nýtt sér Hair Gain Extract frá Hårklinikken eftir krabbameinslyfjameðferð til að styðja við endurvöxt hárs. Hins vegar er ávallt nauðsynlegt að hafa samráð við lækni til að staðfesta hvort meðferðir eða lyf sem þú ert á geti haft hárlos í för með sér. Við mælum einnig með að bíða í að minnsta kosti fjóra mánuði frá lokum síðustu lyfjameðferðar áður en notkun Hair Gain Extract hefst.
Ef hársvörðurinn verður rakur eða blautur við æfingar skaltu bíða í að minnsta kosti tvær klukkustundir áður en þú berð á Hair Gain Extract. Ef þú stundar hins vegar létta hreyfingu og hársvörðurinn finnst ekki rakur, má bera Hair Gain Extract á um 30 mínútum eftir æfingu.
Við getum aðstoðað einstaklinga með margvíslegar áskoranir tengdar hári og hársverði. Hins vegar getum við ekki hjálpað þeim sem glíma við Alopecia areata, Alopecia universalis, Alopecia totalis eða aðra sjálfsofnæmistengda sjúkdóma sem valda hárlosi eða kvillum í hársverði. Ef um er að ræða alvarlegt ástand í hársverði eða grun um undirliggjandi læknisfræðilega orsök hárloss, munum við vísa þér áfram til húðlæknis eða annars sérfræðings svo hægt sé að greina og meðhöndla möguleg vandamál áður en frekari skref eru tekin.
Notkun er sérsniðin fyrir hvern viðskiptavin. Ef þú hefur spurningar um leiðbeiningar varðandi meðferðina skaltu hafa samband við þjónustuteymi Hårklinikken eða þinn Hársérfræðing, þar sem einstaklingsbundnar leiðbeiningar geta verið mismunandi. Notkun Hair Gain Extract fer eftir þeirri formúlu sem þú notar. Hér fyrir neðan eru almennar leiðbeiningar fyrir hverja stærð. Ef þú notar 150 ml formúlu: Hristu Extract-flöskuna vel. Settu oddinn á sprautuna og stingdu henni varlega ofan í flöskuna. Snúðu flöskunni á hvolf og dragðu upp 5 mL. Skiptu hárinu í miðju. Settu litla dropa af Extract rólega meðfram skilinu, byrjaðu við hárlínu og færðu þig aftur að hvirfli. Berðu Extract á í röðum með um það bil 1–1,5 cm millibili þannig að efri hluti höfuðs, hliðar og hvirfill þekjist jafnt. Nuddaðu Extract-ið inn í hársvörðinn með fingrunum eftir hverja röð. Þegar allur vökvinn hefur verið borinn á skaltu renna fingrunum varlega undir hárið og þrýsta þeim þétt að hársverðinum. Notaðu „kreistandi“ hreyfingu og nuddaðu allan hársvörðinn í að minnsta kosti eina mínútu (allt að 5 mínútur), og færðu fingurna til fjórum sinnum á 10–15 sekúndna fresti. Láttu virka í að minnsta kosti 8 klukkustundir. Ef þú notar 240 ml formúlu: Hristu Extract-flöskuna vel. Settu oddinn á sprautuna og stingdu henni varlega ofan í flöskuna. Snúðu flöskunni á hvolf og dragðu upp 4 mL. Skiptu hárinu í miðju og berðu á litla dropa frá hárlínu að hvirfli. Berðu á í röðum með um það bil 1–1,5 cm millibili þannig að svæðið þekjist jafnt. Nuddaðu inn eftir hverja röð. Að lokinni ásetningu skaltu nudda allan hársvörðinn með „kreistandi“ hreyfingum í að minnsta kosti eina mínútu (allt að 5 mínútur), og færa fingurna reglulega til. Bíddu í að minnsta kosti 30 mínútur og endurtaktu síðan sömu skref. Láttu virka í að minnsta kosti 8 klukkustundir. Ef þú notar 180 ml formúlu: Hristu Extract-flöskuna vel. Settu oddinn á sprautuna og stingdu henni varlega ofan í flöskuna. Snúðu flöskunni á hvolf og dragðu upp 3 mL. Skiptu hárinu í miðju og berðu á litla dropa frá hárlínu að hvirfli. Berðu á í röðum með um það bil 1–1,5 cm millibili yfir efri hluta höfuðs, hliðar og hvirfil. Nuddaðu inn eftir hverja röð. Þegar allur vökvinn hefur verið borinn á skaltu nudda allan hársvörðinn með „kreistandi“ hreyfingum í að minnsta kosti eina mínútu (allt að 5 mínútur), og færa fingurna reglulega til. Bíddu í að minnsta kosti 30 mínútur og endurtaktu sömu skref. Láttu virka í að minnsta kosti 8 klukkustundir.
Hárígræðsla telst árangursrík ef hún lítur náttúrulega út og hylur vel þau svæði sem hafa þynnst. Hins vegar leysir hárígræðsla ekki vandann við áframhaldandi hárlos, þar sem hárið heldur áfram að rýrna að gæðum og magni eftir aðgerðina. Það getur leitt til þess að ígræddu hárin standi ein eftir efst á höfðinu á meðan upprunalega hárið heldur áfram að þynnast með tímanum, sem getur skapað sífellt óeðlilegra útlit. Ef þú ert enn með nægilegt magn af óígræddu hári efst á höfðinu getur Hair Gain Extract frá Hårklinikken að öllum líkindum hjálpað til við að bæta gæði hársins og viðhalda því hári sem fyrir er
Augabrúnir og skegg; Hair Gain Extract er aðeins ætlað til notkunar í hársverði. Augnhár: Við ráðleggjum ekki að nota Hair Gain Extract á augnhár, þar sem það getur ert viðkvæma húðsvæðið í kringum augun..
Ofnæmisviðbrögð, eins og kláði eða sviði við notkun Hair Gain Extract, eru afar sjaldgæf. Ef þú finnur fyrir slíkum einkennum getur það bent til undirliggjandi vandamáls í hársverði sem þarf að skoða nánar. Margar hárvörur á markaðnum innihalda innihaldsefni sem geta lagst utan á hár og hársvörð og valdið ójafnvægi sem getur verið erfitt að greina. Til að viðhalda heilbrigðum hársverði og hári er mikilvægt að fylgja réttri hárumhirðurútínu. Það felur í sér að þvo hárið daglega eða annan hvern dag til að koma í veg fyrir uppsöfnun, ertingu, bólgu og sýkingar í hársekkjum af völdum fitu (sebum). Ef erting heldur áfram skaltu hafa samband við þjónustuteymi Hårklinikken með tölvupósti á reykjavik harklinikken.com, eða í síma 547-9200. Þjónustutími er mánudaga til föstudaga frá kl. 9:00–17:00 að undanskildum fimmtudögum en þá er opið frá 9-18 og laugardaga frá 11-16.
Í fyrstu ráðgjöf mun Hársérfræðingur þinn leiðbeina þér um Hårklinikken-aðferðina, sem felur í sér sérsniðna Hair Gain Extract og persónulega vörurútínu. Ef þú ert að íhuga að nota aðrar meðferðir við hárþynningu, eins og PRP, mesotherapy eða minoxidil, mælum við með að ræða það við Hársérfræðinginn áður en þú byrjar. Hann getur veitt upplýsingar um hugsanlegar aukaverkanir, biðtíma og leiðbeiningar um hvernig best sé að samþætta þessar meðferðir í daglega rútínu þína.
Á meðgöngu seinkar venjulegur hárlosahringur líkamans, og margar konur taka eftir breytingum á hárgæðum, þar sem það verður oft meira og glansandi. Um 12 til 16 vikur eftir fæðingu fara mörg hár í hvíldarstig og byrja að falla, sem leiðir til hárloss sem gerðist ekki á meðgöngu. Þetta hárlos getur virst mikið og valdið áhyggjum, en það er eðlileg hluti af hárvextarhringnum og merkir að líkaminn er að snúa aftur í eðlilegt ástand. Eftir fæðingu breytist oft áferð og gæði hárs, sem getur verið merki um erfðafræðilega tilhneigingu til þynnri hárs og valdið smám saman, en hraðari, minnkun á stærð hársekkja. Eftir fæðingu, sérstaklega í fyrsta skipti, takast margar konur á við nýja lífsstíl, sem felur í sér breytingar á matarvenjum og svefnvenjum. Þessar breytingar geta valdið álagi á líkamann og aukið áhrif erfðafræðilegrar tilhneigingar til hárloss. Fyrir konur sem hafa fætt barn fyrir meira en sex mánuðum og tekið eftir að hárið hefur þynnst eða ekki viðhaldið sama gæði, mælum við með að bóka ráðgjöf til að hefja persónulega Hårklinikken-aðferð.
Nei, engar vörur frá Hårklinikken innihalda Minoxidil.
Sum lyf sem hafa hárlos sem aukaverkun geta hindrað framför þína. Við mælum með að hafa samband við heimilislækni þinn ef þú hefur áhyggjur af hárlosi sem gæti tengst lyfjanotkun.
Já. Hårklinikken notar innihaldsefni og tækni byggða á plöntuefnum og afurðum úr kúamjólk, þannig að allar vörur okkar eru öruggar til notkunar á meðgöngu og meðan brjóstagjöf stendur. Að auki innihalda vörurnar okkar hvorki ilmefni, litarefni, silíkona né parabena, svo eitthvað sé nefnt.
Báðir þessir kvarðar eru gagnleg verkfæri fyrir hársérfræðinga til að greina og meðhöndla hárlos, þar sem þeir sýna mismunandi stig og mynstur hárþynningar. Mismunandi stig hárloss hjá körlum eru metin samkvæmt Norwood-kvarðanum, en hárlos hjá konum er flokkað samkvæmt Savin-kvarðanum.
Hársvörðurinn er frábrugðinn öðrum húðsvæðum á ýmsa vegu. Í fyrsta lagi er varnarhlutverk hans veikara, sem gerir hann móttækilegri fyrir húðvandamálum þar sem hann nýtur ekki sömu verndar gegn óæskilegum umhverfisáhrifum. Hársvörðurinn hefur einnig fleiri og stærri hársekkii ásamt fleiri fitukirtlum en önnur húðsvæði. Þetta undirstrikar mikilvægi þess að viðhalda réttri hárumhirðurútínu, sem felur í sér að þvo hárið daglega eða annan hvern dag til að koma í veg fyrir uppsöfnun á olíu (sebum) og ertingu eða bólgu í hársverði og/eða hársekkjum. Ef slíkt er látið ómeðhöndlað getur það leitt til hárþynningar. Nánari upplýsingar má finna í greininni okkar um daglegan hárþvott hér.
Allar vörur frá Hårklinikken, þar með taldar mótunarvörur, vinna saman til að skapa fullkomið umhverfi fyrir heilbrigðan hársvörð og hársekki, sem styður við bestu skilyrði fyrir hárvöxt. Við mælum með því að þegar þú byrjar að nota Hair Gain Extract hættir þú notkun annarra mótunarvara. Margar slíkar vörur geta safnast upp á hári og hársverði, sem getur leitt til húðbólgu, hársekkjabólgu (sem getur valdið örmyndun) eða jafnvel hárloss. Efnin geta einnig safnast á hárstrá, sem gerir hárið matt, laust við spennu og líflaust. Nokkur algeng innihaldsefni í mótunarvörum sem geta valdið vandamálum eru meðal annars litarefni, ilmefni, diethanolamine, propýlparaben, bútýlparaben, isobutýlparaben, methylisothiazolinone, DMDM hydantoin, coumarin, geraniol, octinoxate og amýl-sinamaldehýð. Ef þú óskar eftir ráðgjöf varðandi mótunarvörur skaltu hafa samband við þjónustuteymi Hårklinikken með tölvupósti á reykjavik harklinikken.com, eða í síma 547-9200. Þjónustutími er mánudaga til föstudaga frá kl. 9:00–17:00 að undanskildum fimmtudögum en þá er opið frá 9-18 og laugardaga frá 11-16.
Aukið hárlos er ekki algengt en getur komið fyrir hjá sumum þegar byrjað er að nota Hair Gain Extract. Þetta telst þó ekki raunverulegt hárlos, heldur náttúruleg breyting þar sem veikari og fínni hár falla úr og verða skipt út fyrir heilbrigðari og þykkari hár. Viðskiptavinir sem upplifa vægt hárlos snemma í Hårklinikken-rútínu sinni byrja yfirleitt að sjá sýnilegan árangur innan 2–3 mánaða frá meðferð. Hárlos má einnig útskýra með náttúrulegum hárvaxtarhring. Náttúruleg losun hárs er síðasta stig hringrásarinnar, þar sem hársekkurinn verður óvirkur og hárið losnar. Á hverjum tíma eru um það bil 5% hárs í þessu stigi, sem gerir daglegt hárlos alveg eðlilegt. Flestir missa á bilinu 50–150 hár á dag. Aukið hárlos getur einnig orsakast af áhrifum ytri þáttum eins og streitu, veikinda, skurðaðgerða, ákveðinna lyfja, þyngdartaps eða annarra líkamlegra eða andlegra álagstengdra þátta. Einnig geta hárgreiðsluvenjur, höfuðbúnaður, fléttur, hárlengingar eða stífar hárgreiðslur, auk sumra hárvara, stuðlað að þynnra hári með tímanum. Sum innihaldsefni geta haft fagurfræðileg áhrif til skemmri tíma, en langtíma notkun þeirra getur skaðað hársvörð og hársekki.
Já, þú getur litað eða sett strípur í hárið meðan þú notar Hair Gain Extract. Hins vegar mælum við með að sleppa notkun Hair Gain Extract sama dag og litun fer fram. Þú getur haldið áfram með venjulega Hair Gain Extract-rútínu daginn eftir.
Þú mátt nota hárlengingar á meðan þú notar Hair Gain Extract. Hins vegar mælum við með að þú ráðfærir þig bæði við Hársérfræðinginn þinn og hárgreiðslumann til að tryggja rétta umhirðu hárs og hársvarðar, sem og viðeigandi notkun Hair Gain Extract meðan viðbætur eru í hárinu. Fyrir sem bestan árangur ásamt heilsu hárs og hársvarðar mælum við með að takmarka notkun hárlenginga í stuttan tíma eftir að Hair Gain Extract meðferð hefst, þar sem lengingar og ákveðnar hárgreiðslur geta stuðlað verulega að þynningu hársins og jafnvel valdið varanlegu hárlosi. Auk þess ráðleggjum við að minnka notkun á hitamótunartækjum..
Við mælum ekki með keratínmeðferðum, þar sem þær hylja hárstráin, oft með innihaldsefnum sem geta valdið vandamálum og hindra raunverulega og mikilvæga rakagjöf í að komast inn í hárið. Ef þú vilt þó nota keratínmeðferðir skaltu hafa samband við okkur svo við getum leiðbeint þér um besta ferlið.
Nei, Hair Gain Extract frá Hårklinikken veldur ekki auknum hárvexti á öðrum líkamssvæðum.
Sendingar
Þegar pöntunin þín hefur verið móttekin og afgreidd færðu staðfestingarpóst með upplýsingum um pöntunina þína. Í þeim pósti finnur þú rakningarnúmer. Til að fylgjast með pöntuninni skaltu slá inn pöntunarupplýsingarnar þínar í spjallið (chat) sem birtist neðst í hægra horninu á heimasíðunni okkar eða á hjálparsíðunni (Help Center).
Fyrirspurnir um pantanir
Við biðjumst innilegrar afsökunar á mistökum sem kunna að hafa átt sér stað varðandi nýjustu pöntunina þína. Við aðstoðum þig að sjálfsögðu með ánægju og sendum nýja pöntun eins fljótt og auðið er. Vinsamlega hafðu samband við okkur á reykjavik@harklinikken.com eða hringdu í okkur í 547-9200 Þjónustutími viðskiptavina er mánudaga til föstudaga frá kl. 9:00 til 17:00 að undanskildum fimmtudögum en þá er opið til kl 18:00 og laugardaga frá 11:00- 16:00.
Þegar pöntun hefur verið afgreidd og rakningarupplýsingar hafa verið sendar, er því miður ekki lengur hægt að gera breytingar á pöntuninni. Ef þú vilt skila pöntuninni þegar hún berst, vinsamlega fylgdu hlekknum hér að neðan. Þú getur skilað vörunum og fengið endurgreitt samkvæmt skilmálum í „skilastefnu“.
Þegar pöntun þinni hefur verið pakkað hjá okkar og rakningarupplýsingar hafa verið sendar er ekki lengur hægt að hætta við pöntunina. Ef þú vilt skila vörum sem falla undir skilastefnu okkar, vinsamlega gerðu það hér. Skoðaðu síðuna okkar um skil og endurgreiðslur til að fá nánari upplýsingar. Þegar sendingardeild okkar hefur móttekið skilaðar vörur verður endurgreiðsla framkvæmd. Venjulega berst endurgreiðslan á kortið þitt innan 10 daga.
Þegar pöntun þinni hefur verið pakkað hjá sendingardeild okkar og rakningarupplýsingar veittar, er ekki hægt að bæta við eða fjarlægja vörur úr pöntuninni. Ef þú vilt skila vörum sem falla undir skilastefnu okkar, vinsamlega gerðu það hér.
Vörurnar okkar
Það sem gerir Hårklinikken sérstakt er 100% sérsniðna, hársvarðar miðaða nálgun okkar, sem hefur verið okkar megináhersla í yfir 33 ár. Við höfum framkvæmt víðtæka rannsókn á ýmsum þáttum sem leiða til hárþynningar og vandamála í hársverði, í þremur heimsálfum og í tíu löndum. Þetta hefur gert okkur kleift að skoða hvernig hárþynning og hársvarðsvandamál koma fram hjá mismunandi kynþáttum og í ólíkum umhverfum. Meginstoð Hårklinikken er sérsniðið Hair Gain Extract, hannað til að styðja þá sem upplifa mismunandi tegundir hárþynningar og hárloss, þar með talið algengustu tegundina, sem kallast androgenetic hárlos (eða einfaldlega erfðafræðilegt hárlos). Við leggjum metnað okkar í að sérsníða og handblanda hverja meðferð fyrir hvern viðskiptavin, með stöðugum aðlögunum eftir því sem viðbrögð, lífsþættir og fylgni við meðferð krefjast. Sérsniðning Hair Gain Extract hefst með ráðgjöf hjá Hársérfræðingum okkar, sem er lykilþáttur í Hårklinikken-aðferðinni. Í fyrstu ráðgjöf hittir þú Hársérfræðing til að fara yfir sögu hárs og hársvarðar, bæði frá okkar sjónarhorni og þínu. Ef þú getur komið í klínikuna framkvæmir sérfræðingur nákvæma skoðun á hársverðnum með stækkunar myndavél til að meta núverandi ástand og hárþynningu. Ef skoðuin sýnir fram á að þú sért hæfur fyrir Extract, og þú vilt byrja, tekur sérfræðingur grunnmyndir sem gera okkur kleift að fylgjast nákvæmlega með framförum þínum í meðferðinni, og leiðbeina við gerð sérsniðinnar Extract-formúlu og val á réttum þvotta- og rakavörum sem vinna í sérstöku samspili við Hair Gain Extract til að stuðla að sem heilbrigðustum hársverði og hári. Allar vörur Hårklinikken, þar með taldar sjampó, rakavörur og mótunarvörur, vinna saman til að skapa fullkomið umhverfi fyrir hársvörð og hársekki. Sjampóið okkar er ekki venjulegt sjampó; það er meðferð sem hreinsar hársvörð og hársekki á mildan en áhrifaríkan hátt, og skapar kjöraðstæður fyrir heilbrigðasta hár og hársvörð. Rakavörur okkar bæta gæði, heilsu, áferð og glans hárs án silíkona eða svipaðra innihaldsefna.
Hair Gain Extract og vörulína Hårklinikken hentar öllum sem vilja sérsniðnar lausnir til að hámarka heilsu hársvarðar, þéttleika og gæði hárs.
Vörur Hårklinikken, þar með talið sjampó, hárnæringar og mótunarvörur, eru allar vegan. Hair Gain Extract inniheldur þó innihaldsefni sem eru unnin úr kúamjólk. Fæðubótarefnið okkar (Hair Supplement) er vegan.
Nei. Við höfum aldrei og munum aldrei prófa vörur okkar á dýrum.
Hårklinikken býður upp á fjölbreytt úrval vara, þar með talið sjampó, hárnæringar, mótunarvörur og meðferðir fyrir hárvöxt. Til að finna þær vörur sem henta þér best, mælum við með að bóka ráðgjöf með einum af Hársérfræðingum okkar. Þeir munu útbúa sérsniðna og persónulega vörurútínu til að hjálpa þér að ná markmiðum þínum varðandi hár.
Heildræna aðferðin hjá Hårklinikken vinnur í samspili til að ná fullkomnu jafnvægi fyrir viðkvæman hársvörð og hársekki. Hair Gain Extract er sérsniðin formúla fyrir hvern viðskiptavin og inniheldur einkaréttarvarin innihaldsefni úr plöntuefnum, auk efna úr kúamjólk. Extract-ið örvar hársekki og skapar kjöraðstæður fyrir vöxt í núverandi hári. Rakavörur okkar bæta gæði, heilsu, áferð, teygjanleika og glans hárs án silíkona eða svipaðra innihaldsefna sem aðeins gefa skynjun á heilbrigðu hári. Sjampóin okkar eru meira en venjuleg sjampó; þau virka sem meðferðir sem hreinsa hársvörð á mildan en áhrifaríkan hátt og stuðla að heilbrigðasta mögulega hári og hársvörði.
Til að ná sem bestum árangri mælum við með að nota Hair Gain Extract samhliða sjampóum, hárnæringum og mótunarvörum úr Hårklinikken línunni, þar sem allar vörurnar vinna saman til að skapa kjöraðstæður fyrir hárvöxt og heilbrigðan hársvörð.
Við bjóðum við upp á tvær gerðir af hreinsisjampóum: Balancing Shampoo og Stabilizing Shampoo. Balancing Shampoo, verðlaunað sjampó, hentar þeim sem hafa þurrt til venjulegt hár og nota oft mótunarvörur. Þetta sjampó er hannað til að hreinsa og styrkja hárið á djúpstæðan hátt, ásamt því að jafna pH gildi hársvarðarins og skapa kjöraðstæður fyrir hárvöxt. Mild og húðlæknafræðilega prófuð samsetning Balancing Shampoo hentar daglegri notkun og inniheldur styrkjandi innihaldsefni úr sinnepsfræolíu til að jafna pH hársvarðarins og stuðla að heilbrigðu hári. Stabilizing Shampoo, verðlaunað sjampó, er djúphreinsandi formúla sérstaklega hönnuð fyrir olíukenndan hársvörð og matt, þurrt eða litað hár. Það inniheldur einstök og endurnærandi innihaldsefni úr klóklapparrót sem vinnur að því að jafna örveruflóru hársvarðar, endurheimta glans og jafna umfram olíuframleiðslu. Þessi formúla frískar upp hársvörðinn og gerir hárið fyllra og glansandi. Auk Balancing og Stabilizing Shampoo bjóðum við einnig Fortifying Shampoo, viðbótarsjampó sem eykur áhrif hreinsisjampóa okkar. Nærandi formúlan inniheldur rakagefandi innihaldsefni eins og aloe vera og niacinamide, sem hentar vel þurrum hársvörðum og hári sem er þurrt, brothætt, ofmeðhöndlað eða skemmt af hita. Þegar það er notað með Balancing og Stabilizing Shampoo hjálpar það til við að endurheimta jafnvægi hársvarðar og skilur hárið eftir sterkara, mýkra og glansandi.
Fæðubótarefni
Hárbætiefnið (Hair Supplement) hentar öllum kynjum og einstaklingum 18 ára og eldri. Ef þú hefur áhuga á að taka þessa vöru en uppfyllir ekki aldurskröfu, vinsamlega ráðfærðu þig við lækni eða heilbrigðisstarfsmann. Við mælum ekki með Hair Supplement fyrir einstaklinga sem eru óléttir, með barn a brjósti eða þá sem eru að reyna að verða barnshafandi, né fyrir þá sem eiga við sjálfsónæmis-, skjaldkirtils-, magavandamál eða lifrarvandamál að stríða. Ef þú ert að glíma við hárlos eða þynningu hárs vegna örandi hársvörðarvandamála eða sjálfsónæmisvandamála í hársverði eða hári, mælum við með að bóka ráðgjöf með Hársérfræðingi. Þetta hjálpar okkur að meta hvort Hair Supplement henti þér eða hvort þú ættir frekar að hitta húðsjúkdómalækni eða annan sérfræðing.
Hair Supplement skilar sýnilegum árangri þegar það er tekið eitt og sér. Þegar það er notað samhliða Hair Gain Extract veitir samsetningin hámarks stuðning fyrir sterkara, þykkara og heilbrigðara hár. Hair Gain Extract er staðbundin meðferð sem miðar að því að hámarka aðstæður fyrir hárvöxt. Með því að skapa kjöraðstæður í hársverðnum og örva bæði dvala og smávaxna hársekki skapar Extract-ið fullkomið umhverfi fyrir háum gæðum og varanlegan hárvöxt. Extract-ið er sérsniðið fyrir einstakar þarfir hvers viðskiptavinar. Hair Supplement beinist að átta lykilþáttum innanfrá sem geta ýtt undir hárlos.. Það vinnur á þremur líffræðilegum orsökum: streitu, ójafnvægi í meltingarvegi og næringarskorti, auk þess að styðja við fimm mikilvæga þætti fyrir hárvöxt, heilbrigði, styrk og þéttleika. Formúlan er faglega þróuð með nýstárlegum innihaldsefnumi sem hefur klínískt sannað áhrif á hvert viðfangsefni. Hún er einföld en áhrifarík og stuðlar að sterkara, þykkara og heilbrigðara hári, hvort sem hún er tekin ein eða til að auka áhrif Hair Gain Extract.
Allt að tveimur vikum til mánaðar getur þú byrjað að finna minni streitu, betri svefni og mögulega minni bólgu, ef það á við. Þegar líður að tveimur mánuðum getur þú tekið eftir minna hárlosi. Á þessum tíma er innra umhverfi líkamans smám saman að róast svo að hársekkir séu ekki dregnir of snemma inn í losunarstig. Milli tveggja og sex mánaða getur hárið byrjað að virðast þykkara, heilbrigðara og þéttara. Þetta er þegar árangur verður greinilegri: hársekkir sem voru í dvala eða framleiddu veik og smávaxin hár framleiða nú sterkari og heilbrigðari hárstrá. Í klínískri neytendarannsókn á Hair Supplement fæðubótarefninu frá Hårklinikken sögðust þátttakendur upplifa hraðari hárvöxt, aukinn þéttleika hárs og almenna bætingu á heilsu hársins eftir aðeins 60 daga notkun.
Þú mátt taka önnur fæðubótarefni samhliða Hair Supplement. Við mælum þó með að þú skoðir innihaldslýsingu vörunnar fyrst til að tryggja að þú neytir ekki of mikils magns af tilteknum næringarefnum. Til dæmis, ef þú ert þegar að taka Ashwagandha eða Saw Palmetto, gætir þú íhugað að hætta á þeim fæðubótarefnum og einblína á Hair Supplement. Áður en þú breytir núverandi vítamínrútínu þinni er ráðlegt að ráðfæra sig við heimilislækni eða annan lækni til að tryggja að þú fáir rétta aðstoð og leiðbeiningar.
Hair Supplement inniheldur einnig probiotic í formúlunni, með 10 milljörðum CFU af Lactobacillus casei til að styðja við heilbrigðari örveruflóru í meltingarvegi. Þetta getur komið í staðinn fyrir aðra góðgerla inntöku
Vinsamlega ráðfærðu þig við lækni eða heilbrigðisstarfsmann ef þú ert nú þegar að taka önnur fæðubótarefni eða ávísuð lyf. Innihaldsefnalisti er aðgengilegur til kynningar.
Við mælum ekki með Hair Supplement fyrir einstaklinga sem eru óléttir, með barn a brjósti eða þá sem eru að reyna að verða barnshafandi,Vinsamlega ráðfærðu þig við ljósmóður eða heilbrigðisstarfsmann
Já, Hair Supplement er vegan.
Hair Supplement og Hair Gain Extract frá Hårklinikken eru hönnuð til að styðja hvort annað frekar en að skipta hvoru öðru út, þar sem þau vinna á mismunandi hátt gegn hárlosi og þynningu. Hair Supplement beinist að innri þáttum sem geta stuðlað að hárþynningu, svo sem streitu, ójafnvægi í meltingarvegi og skorti á nauðsynlegum næringarefnum, ásamt því að skapa kjöraðstæður fyrir hársekkina svo þeir geti framleitt lengra og sterkara hár.
Við birtum allar upplýsingar um innihaldsefni í Hair Supplement. Fyrir þekkt ofnæmisvalda, vinsamlega skoðaðu
Til að ná sem bestum árangri mælum við með að nota annað hvort Stabilizing Scalp Shampoo eða Balancing Shampoofrá Hårklinikken meðan á notkun Hair Supplement stendur. Sjampóin frá Hårklinikken eru ekki venjuleg sjampó; þau eru sérhæfðar meðferðir sem hreinsa hársvörð og hársekki á mildan en áhrifaríkan hátt og skapa kjöraðstæður fyrir sem heilbrigðasta hársvörð og hár.
Við trúum því að hárþynning sé sjaldan orsökuð af einum þætti. Margar líffræðilegar leiðir tengjast oft hvor annarri og magna áhrifin, þar á meðal: androgenetískir þættir, hormónatruflanir, bólgusvar, örvefjavandamál, oxunarálag, skortur á næringarefnum og sjálfsónæmisvandamál. Þess vegna þróuðum við heildræna, 100% sérsniðna meðferðarleið sem tekur á mörgum orsökum samtímis.
Þó að ráðgjöf sé ekki krafa til að kaupa Hair Supplement, hvetjum við þig eindregið til að bóka ráðgjöf með Hársérfræðingi. Þetta gerir þér kleift að fara vandlega yfir ástand og markmið þín. taka grunnmyndir og fá sérsniðna vörurútínu sem styður við árangur þinn meðan á inntöku fæðubótarefnisins stendur.