Hversu oft ætti ég að þvo á mér hárið?

Það getur verið umdeilt hversu oft eigi að þvo hárið. Margir halda sig við að þvo hárið einu sinni í viku og telja það hjálpa til við að halda náttúrulegum gljáa hársins og stuðla að heilbrigði örveruflórunnar í hársverðinum. Í fegurðarheiminum er daglegur hárþvottur oft talinn vera hálfgert bannorð.

Það getur líka átt við ef notuð eru sterk sjampó og vörur sem rýra hársvörðinn eða geta verið skaðleg fyrir hárstráin. En í raun og veru ræðst þetta allt af því hvaða vörur þú notar, hvernig þú þværð hárið – og ekki síst  gerð hárs og hársvarðar. 

Reyndu að þvo hárið daglega eða annan hvorn dag

Þó að sjampó sem innihalda skaðleg efni geti haft neikvæð áhrif, þá getur notkun réttra vara – sem eru gerðar með vandaðri tækni og réttum samsetningum innihaldsefna – haft mjög jákvæð áhrif á bæði hár og hársvörð.

Helsti sérfræðingur okkar í rannsóknum á hársvörðum og hári Lars Skjøth, lítur á hársvörðinn eins og húðina í andlitinu:

 „Hugsaðu um þetta svona: Þværðu andlitið daglega? Rétt eins og húðin í andlitinu, þá þarf hársvörðurinn að fá hreinsun, næringu og rétta umönnun til að virka sem best. Húðin á hársverðinum er jafnvel viðkvæmari en húðin í andlitinu og þarf því reglulega og vandlega umhirðu.“

Verður hárið ekki olíukenndara af daglegun hárþvotti? 

Staðreyndin er þessi: þú getur ekki komið í veg fyrir að hárið verði fitugt. Algengur misskilningur er að með því að þvo hárið sjaldnar geti þú hægt á framleiðslu olíu í hársverðinum, en ef þú hefur fæðst með olíukenndan hársvörð, þá skiptir engu máli þó þú sleppir nokkrum þvottum – hársvörðurinn verður samt olíumikill. Það er einmitt enn frekari ástæða til að þvo hárið daglega eða eins oft og þér hentar. 

Þarfir hvers og eins eru mismunandi

Þó við mælum með reglulegri hreinsun á hársverði, þá erum við öll ólík og með mismunandi þarfir. Hversu oft þú þarft að þvo hárið fer að mestu leyti eftir gerð hársins. 

Slétt hár: Daglegur þvottur

Slétt hár getur átt það til að framleiða meira af olíu. Sléttu hárstráin auðvelda fitunni á hársverðinum að renna niður eftir hárinu, sérstaklega ef hárið er fíngert. Þess vegna er almennt mælt með því að þeir sem eru með slétt hár þrífi það daglega.

Passaðu að nota mild sjampó ef þú þværð hárið daglega til að forðast þurrk og kláða í hársverðinum. Ef þú getur ekki þvegið hárið á hverjum degi skaltu stefna á að þvo það á annan eða þriðja dag með djúphreinsandi sjampói sem er án sulfata og parabena. Það er líka mjög mikilvægt að fylgja eftir með góðri rakagjöf eftir sjampóið. 

Liðað hár: Daglega eða annanhvern dag

Fólk með liðað hár ætti líka að þvo hárið daglega eða á annan hvern dag. Liðað hár á tilhneigingu til að safna fitu og vörum hraðar en krullaðri gerðir, sérstaklega við hársvörðinn, á meðan endarnir geta verið þurrir. Reglulegur hárþvottur hjálpar til við að viðhalda heilbrigðum hársverði og kemur í veg fyrir að liðirnir þyngist eða verði fitugir.

Milt sjampó án sulfata er best til að forðast að fjarlægja náttúrulega olíu úr hárinu, og getur verið gagnlegt að skipta á milli djúphreinsandi og rakagefandi sjampóa. Fyrir þá sem móta liðina oft eða nota þyngjandi vörur, getur verið nauðsynlegt að þvo hárið oftar til að halda hársverðinum í jafnvægi og hárinu fersku. 

Krullað: Ekki jafn einfalt

Krullað hár krefst oft sérsniðinnar hreinsirútínu vegna einstaks lögunarforms hárstráanna. Spírallaga krullur gera það erfiðara fyrir náttúrulega olíu (sebum) að ferðast niður eftir hárinu, sem getur leitt til þurrks – sérstaklega í endunum. Þess vegna þarf krullað hár á hámarksrakagjöf að halda til að viðhalda heilbrigði, formi og meðfærileika.

Þeir sem eru með lausari krullur gætu haft gott af því að þvo hárið daglega eða á annan hvern dag, en þeir sem eru með þéttari og þurrari krullugerðir kjósa oft sjaldgæfari hárþvott til að varðveita raka. Mismunandi gerðir krulla skipta miklu máli þegar kemur að því að finna rétta hreinlætisrútínu.

Það skiptir miklu að nota mildar og rakagefandi hárvörur. Til viðbótar við milt hreinsisjampó getur rakagefandi sjampó styrkt hárið, stutt við formgerð krullna og veitt hárinu næringu án þess að fjarlægja nauðsynlega náttúrulega fitu. 

Hrokkið hár: þvottur tvisvar í viku

Fólk með hrokkið (coily) hár ætti að huga sérstaklega vel að því að hreinsa hársvörðinn, þar sem mikil þéttleiki hársins getur gert það erfiðara að komast að húðinni sjálfri. Sumum gæti hentað að þvo hárið á annan hvern dag, á meðan aðrir þurfa aðeins að þvo það einu sinni í viku eða á 10 daga fresti.

Í flestum tilvikum er best að þvo hrokkið hár tvisvar í viku. Ein mild og áhrifarík leið til að hreinsa hársvörðinn án þess að bleyta allt hárið er að nota blautan þvottapoka með þynntu sjampói og vatni. Milli hárþvotta er einnig hægt að skola hárið með vatni og nota hárnæringu til að fríska upp á það og viðhalda raka. 

Stuðlar daglegur hárþvottur að auknum hárvexti?

Þó að daglegur hárþvottur hafi ekki bein áhrif á hve hratt hárið þitt vex, styður hann við heilbrigðan hárvöxt. Þegar fita og uppsöfnun efna safnast fyrir á hársverðinum getur það stíflað hársekkina eða valdið ertingu og raskað náttúrulegu jafnvægi hársvarðarins.

Ef hársverðurinn er ekki hreinsaður og viðhaldið með réttri umhirðu getur það leitt til ertingar, roða, bólgu í hársverði og jafnvel bólgu í hársekkjum (folliculitis), sem getur á endanum valdið hárlosi og þynningu.

Því betur sem þú hugsar um hársekkina, því lengra og heilbrigðara hár munu þeir framleiða. 

Að viðhalda góðu pH gildi í hársverði

Þegar sjampóið þitt er rétt samsett hjálpar það til við að halda jafnvægi í örveruflóru hársvarðarins og stuðlar að kjörsýrustigi (pH). Rétt sýrustig er lykilatriði til að skapa kjöraðstæður fyrir heilbrigðan hárvöxt og draga úr þynningu, hárlosi og óeðlilegu hárlosi.

Hver er besta aðferðin við að þvo hárið?

Við erum með heila grein tileinkaða bestu aðferðunum til að þvo hár eftir hárgerð og hársvarðargerðum. En stutta útgáfan er svona: Bleyttu hárið með volgu vatni, leyfðu sjampóinu að freyða í lófunum áður en þú berð það undir hárið og beint á hársvörðinn, nuddaðu með fingrunum í um það bil 30 sekúndur og skolaðu svo vandlega úr.

Hversu oft ætti ég að þvo hárið ef ég stunda líkamsrækt á hverjum degi?

Hreyfing getur haft áhrif á heilsu hársverðsins og hárlos. Þetta stafar af uppsöfnun svita ásamt sebum, dauðum húðfrumum, óhreinindum, hárvörum og mengun.

Þú ættir að þvo hársvörðinn og hárið reglulega ef þú svitnar við æfingar, því að ef olía og sviti fá að sitja of lengi á hársverðinum getur það valdið ástandi sem leiðir til hárloss.

Hvernig veit ég hvort ég sé að þvo hárið of oft?

Dagleg notkun óæskilegra sjampóa getur gert hárið matt, brothætt eða úfið. Hársvörðurinn  getur orðið þurr, ertur  og jafnvel getur komið fram kláði. 

Ef þú þværð hárið á hverjum degi skaltu passa að næra það vel með djúpvirkum hárnæringum, hármaska eða rakagefandi hárkremi sem skilið er eftir í hárinu til að koma í veg fyrir þurrk. Það er líka gott að forðast að þurrka hárið með blásara eða nota heit mótunartæki eftir daglega sturtu, eða að minnsta kosti nota rakagefandi og verndandi hárkrem áður en þú þurrkar það til að forðast skemmdir á hárinu.

Ekki viss hvar á að byrja?

Best að byrja á því að taka hárprófið okkar á netinu. Eftir því hvað kemur út úr því, sérðu hvort hentar þér annaðhvort ákveðin meðferð strax eða við skipuleggjum viðtal til frekari skoðunar.