Magnesíumsprey fyrir aukinn hárvöxt?

Magnesíumsprey fyrir aukinn hárvöxt?

Fullyrðingarnar geta hljómað sannfærandi. Sumir halda því fram að magnesíumsprey sem er borið beint á hársvörð geti örvað hársekki, leyst upp steinefnasöfnun sem myndast vegna vatns og skapað hagstæðari skilyrði fyrir heilbrigðan hárvöxt. Í ljósi þess hversu víða þessar hugmyndir hafa dreifst er skiljanlegt að margir hafi leitað í magnesíumolíur og -sprey.

Vísindin eru þó flóknari. Við viðurkennum að magnesíum er mikilvægt fyrir lífeðlisfræði líkamans; það starfar sem hjálparþáttur í yfir 500 ensímhvörfum og gegnir lykilhlutverki í taugastarfsemi, vöðvastarfsemi og próteinmyndun. En spurningin um hvort staðbundin notkun á hár og hársvörð skili raunverulegum árangri er þess virði að skoða nánar.

Við fengum vísindastjóra okkar sem einnig er sérfræðivottaður húðlæknir, til að leggja sitt mat á málið. Hér förum við yfir vísindin á bak við notkun magnesíumspreyja fyrir hárvöxt: hvað rannsóknir styðja í raun, hvaðan ákveðnar fullyrðingar kunna að koma og hvernig nálgun sem byggir á raunverulegum gögnum að heilsu hárs og hársvarðar gæti litið út.

Virka magnesíum spray í raun og veru? 

Þó hefðbundin inntaka magnesíums í töfluformi sé enn algengust, hefur orðið veruleg aukning í notkun magnesíumspreyja. Nýjar vörur af þessu tagi eru markaðssettar sem líffræðilega aðgengilegri valkostur en töflur, með þeirri hugmynd að þær frásogist beint inn í blóðrásina í gegnum húðina. Sífellt fleiri framleiðendur halda því fram að þessi leið sé áhrifaríkari en hefðbundin inntaka. 

Þó sumar rannsóknir hafi sýnt að magnesíumsprey geti hækkað magnesíumgildi í blóði, er erfitt að fullyrða að þau séu árangursríkari en hefðbundin fæðubótarefni.  

Einnig hefur verið haldið fram að frásog í gegnum húð geti haft færri aukaverkanir, þar sem það fer framhjá meltingarveginum.

Mýtan um magnesíum á hársvörðinn

Þó að þessi hugmynd sé ekki jafn útbreidd og sú að rósmarínolía örvi hárvöxt, byggir sú trú að magnesíumolía hjálpi við hárvöxt á misskilningi á rannsókn. 

Rannsóknin snerist í raun um það að magnesíum sem borið er á húð – þ.e. í formi spreyja eða húðkrema – geti aukið magnesíumgildi í blóði. Þetta var einföld og skýr rannsókn. Í framhaldinu skoðuðu rannsakendur áhrif þess að bera magnesíumsprey á hársvörð, sem hefur fleiri svitaholur og hársekki en flest önnur svæði líkamans. Niðurstöðurnar sýndu að þetta jók magnesíum í frumum um 59,7%, sem er marktæk aukning hjá átta af níu þátttakendum eftir 12 vikna notkun.

Misskilningurinn varð hins vegar til þegar einhver túlkaði þessa niðurstöðu ranglega sem 59,7% aukningu í hárvexti sjálfum. Þar að auki er úrtakið svo lítið að erfitt er að draga af því áreiðanlegar ályktanir um áhrif magnesíums í gegnum húð – sérstaklega þar sem ekki var borið saman við hópa sem tóku magnesíum inn í gegnum munn. 

Mýtan um að magnesíum hreinsi burt kalkútfellingar

Til að styðja enn frekar við þessa tilgátu hefur húðlæknir haldið því fram að notkun magnesíumspreyja á hársvörð geti hjálpað til við að hreinsa burt kalkútfellingar. Hugmyndin er sú að magnesíum, sem steinefni, geti brotið niður útfellingar sem myndast vegna harðs vatns — og að þessi hreinsun geti skapað hagstæðari aðstæður fyrir heilbrigðan hárvöxt með því að gefa hársekkjunum það sem sumir kalla „svigrúm til að anda“.

Athyglisvert er þó að kranavatn sjálft bendir fremur til hins gagnstæða og getur í raun stuðlað að þeirri steinefnasöfnun sem það er sagt fjarlægja.

Hreinsun kalkmyndaðra hársekkja

Það er til traustari leið, sem byggð er á vísindarannsóknum til að takast á við steinefnasöfnun í hársvörðinum er regluleg og markviss hreinsun með djúphreinsandi formúlu.

Margverðlaunaða Stabilizing Scalp Shampoo frá Hårklinikken er djúphreinsandi sjampó sem er hannað til að fjarlægja uppsafnaðar leifar af vörum, steinefnum og umfram olíu úr hári og hársverði. Formúlan inniheldur okkar einkaleyfisbundna burdock-rótarþykkni ( klóklapparrót) og vinnur á því að hreinsa án þess að raska náttúrulegu rakajafnvægi hársvarðarins — sem er lykilatriði, þar sem of mikil hreinsun getur kallað fram aukna fituframleiðslu og þar með meiri stíflu í kringum hársekkina.

Sem hluti af vel ígrundaðri rútínu fyrir hár og hársvörð getur árangursríkt djúphreinsandi sjampó verið eitt af þeim skrefum sem raunverulega styðja við heilbrigði hársekkja — sérstaklega hjá þeim sem búa á svæðum með klórmengað vatn, eins og víða er tilfellið í Bandaríkjunum t.d.

Hvað gerir magnesíum í raun fyrir heilsu hárs og hársvarðar?

Þó að staðbundin notkun magnesíums skili líklega ekki þeim ávinningi fyrir hársekkina sem oft er haldið fram, gegnir magnesíum sem næringarefni í líkamanum engu að síður mikilvægu hlutverki fyrir heilsu hárs og hársvörðar þegar horft er á heildar lífeðlisfræði líkamans.

Magnesíum tekur þátt í próteinmyndun, og þar sem hár er nánast eingöngu byggt upp af keratíni getur nægilegt magn magnesíums stutt við styrk og uppbyggingu hvers hárstrás. Magnesíum kemur einnig að stjórnun kalsíums í frumum, hefur áhrif á bólguboðleiðir og styður virkni hundruða ensíma sem taka þátt í orkuframleiðslu frumna.

Þegar magnesíumgildi eru of lág forgangsraðar líkaminn notkun þess í lífsnauðsynleg ferli eins og starfsemi hjarta og taugakerfis. Hár, sem er ekki talið lífsnauðsynlegt vefjakerfi, getur því verið meðal fyrstu merkja um næringarskort. Þess vegna er mikilvægt að taka skort alvarlega – jafnvel þó staðbundið sprey sé ólíklegt til að leysa vandann.

Hvað lærdóm getum við dregið af rannsókninni á magnesíumi

Það sem helst má draga af rannsókninni á magnesíumi er ekki endilega að magnesíum sem borið er á hársvörð styðji við hárvöxt, heldur frekar hversu náið hárið er tengt líffræðilegum ferlum líkamans í heild. 

Rannsakendur notuðu svokallaða hársteinefnagreiningu (HMA), viðurkennda rannsóknaraðferð sem talin er áreiðanleg. Í henni eru fyrstu 3–4 cm hársins næst hársvörðinum greindir til að meta næringar- og steinefnasamsetningu yfir síðustu sex til átta vikur. Hár er efnaskiptalega virkur vefur og geymir, á meðan það myndast, eins konar varanlega skrá yfir það sem á sér stað í líkamanum á vaxtartímanum.

HMA getur gefið vísbendingar um ójafnvægi, skort eða ofgnótt bæði nauðsynlegra og skaðlegra steinefna og veitir þannig heildstæða mynd af innra ástandi líkamans. 

Þetta styður við þá nálgun okkar að heilsa hársins sé nátengd almennu heilsufari líkamans.

Heilbrigt hár vex innan frá

Það sem hársteinefnagreining undirstrikar er eitthvað sem Hårklinikken hefur lengi haldið fram: ástand hárs og hársvörðar endurspeglar það sem er að gerast í líkamanum í heild. Næringarstaða, heilsa meltingarkerfisins og efnaskipti geta öll haft áhrif á það umhverfi sem heilbrigt hár þarf til að vaxa.

Sérstaklega ber að gefa meltingarkerfinu gaum — þar fer upptaka næringarefna fram og hversu vel líkaminn nýtir það sem hann fær getur haft bein áhrif á næringuna sem berst til hárs og hársvörðar. Probiotics, sem finnast náttúrulega í gerjuðum matvælum eins og jógúrti, súrkáli og kimchi, gegna mikilvægu hlutverki í að styðja við meltingu og upptöku næringarefna.

Með þetta í huga var Hair Supplement þróað á11 ára tímabill af stofnanda okkar Lars Skjøth í samstarfi við sérfræðivottaðan húðlækni, Dr. Panos Vasiloudes. Þessi heildstæða formúla styður við þéttleika hárs, styrk og heilsu hársvarðar með því að vinna samtímis á átta lykilþáttum innan frá: þremur líffræðilegum orsökum (streitu, ójafnvægi í meltingarvegi og næringarskorti) og fimm nauðsynlegum vaxtarþáttum

Hún inniheldur Lactobacillus casei til daglegs stuðnings við meltingarkerfið, ásamt Panax notoginseng og Astragalus membranaceus sem styðja við upptöku næringarefna í gegnum þarmavegginn. Að auki vinna önnur klínískt rannsökuð innihaldsefni á sértækum þáttum hár- og hársvörðarheilsu: lífrænt ertuspíruþykkni fyrir þéttara útlit hárs, sagpálmaþykkni sem náttúrulegur DHT-hamlandi þáttur, D-bíótín fyrir betra aðgengi, granateplaþykkni fyrir andoxunarstuðning og KSM-66® Ashwagandha rót gegn streitutengdu hárlosi. 

Ættir þú að nota magnesíumsprey á hárið og hársvörðinn?

Miðað við þær vísindalegu upplýsingar sem liggja fyrir er ólíklegt að það að bera magnesíumsprey beint á hár og hársvörð örvi hárvöxt eða fjarlægi steinefnasöfnun á þann hátt sem stundum hefur verið haldið fram á netinu. Sú rannsókn sem oftast er vitnað í virðist ekki hafa verið lesin til hlítar, og ályktanir sem dregnar hafa verið af henni hafa líklega farið lengra en vísindin sjálf styðja.

 Það breytir þó ekki því að nægilegt magn magnesíums í gegnum mataræði eða viðeigandi fæðubót getur stutt við almenna heilsu á þann hátt sem óbeint gagnast hári og hársvörð. Eins og vísindastjóri okkar, Panos Vasiloudes læknir (MD, PhD) og þrefalt sérfræðivottaður húðlæknir, orðar það: „Mikilvægt er að neyta heilnæmrar, fjölbreyttrar fæðu úr góðum hráefnum sem ræktað er í næringarríkum jarðvegi með nægilegum snefilefnum.“

Ef þú hefur áhyggjur af hárþynningu, steinefnasöfnun eða stíflu í hársvörð getur skynsamlegra upphafsskref verið ítarleg ráðgjöf um hár og hársvörð — þar sem tekið er tillit til heildarheilsu þinnar — fremur en að leita lausnar í einu einstöku innihaldsefni.

Vandamál tengd hári og hársvörð eru sjaldnast einföld — og sjaldnast leyst með einni vöru. Raunverulegur og varanlegur árangur byggir yfirleitt á vel ígrundaðri, persónusniðinni nálgun — sem er einmitt grunnurinn að hugmyndafræði Hårklinikken. 

eftir  Heather Lim

Ertu ekki viss um hvar á að byrja?

Við tökum aðeins við umsækjendum sem við teljum geta hjálpað, svo hármat okkar á netinu er besti staðurinn til að byrja. Miðað við niðurstöður þínar muntu annað hvort vera gjaldgengur fyrir tafarlausa meðferð eða við munum skipuleggja ráðgjöf.