„Við erum í skýjunum með opnun útibúsins á Laugavegi í hjarta Reykjavíkur,“ segir Lars Skjoth, stofnandi Harklinikken og yfirmaður rannsókna og þróunar hjá fyrirtækinu í tilkynningu. „Við höfum starfað á Íslandi í þrjú ár og viðtökurnar hafa verið ótrúlega jákvæðar, þúsundir Íslendinga eru nú í meðferð hjá okkur. Þetta útibú sem sameinar verslun og persónulega stofu er spennandi tilraun fyrir okkur því við getum hugsað okkur að færa út kvíarnar í smásölu víðsvegar um heim.“
Í tilkynningunni segir að Harklinikken hafi skapað sér orðspor á meðal vönduðustu og virtustu hárþjónusta í heiminum. Íslenskir neytendur munu geta fræðs um Harklinikken og prófað vörur í útibúinu en áður áður hefur vörumerkið takmarkað aðgengi að vörum sínum við þá sem vísað hefur verið í meðferð við hárlosi.
„Hársérfræðingar Harklinikken munu starfa í versluninni en þeir allir þrautþjálfaðir í að finna vandamál í hári og hársverði. Þessir sérfræðingar geta beint viðskiptavinum að vörum sem henta hverju sinni og byggt þannig á hefð Harklinikken fyrir einstaklingsmiðaðri og persónulegri þjónustu, sem skapað hefur vörumerkinu sérstöðu á markaði. Auk þess að fræða neytendur um vöruna geta þeir einnig veitt þeim ráðgjöf sem líta við án þess að hafa bókað og hafa áhuga á sérvalinni meðferð við hárþynningu í einu af meðferðarherbergjum nýja útibúsins,“ segir í tilkynninunni."