Shopping cart .innerHTML = '(' + (0) pcs

    Frá Viðskiptablaðið: https://www.vb.is/frettir/althjodlegur-harmedferdaradili-laugaveginn/162283/

    "Harklinikken hefur opnað fyrsta útibú sitt í Reykjavík að Laugavegi 15 þar sem Michelsen úrsmiður var áður til húsa í fjölmörg ár.

    Alþjóðlega hárvörumerkið Harklinikken hefur opnað fyrsta útibú sitt í Reykjavík að Laugavegi 15 þar sem Michelsen úrsmiður var áður til húsa í fjölmörg ár. Þar verður bæði starfrækt verslun og meðferðarstofa. Harklinikken er þekkt fyrir meðferðir á hárlosi kvenna og karla og hárheilbrigði. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

    „Við erum í skýjunum með opnun útibúsins á Laugavegi í hjarta Reykjavíkur,“ segir Lars Skjoth, stofnandi Harklinikken og yfirmaður rannsókna og þróunar hjá fyrirtækinu. „Við höfum starfað á Íslandi í þrjú ár og viðtökurnar hafa verið ótrúlega jákvæðar, þúsundir Íslendinga eru nú í meðferð hjá okkur. Þetta útibú sem sameinar verslun og persónulega stofu er spennandi tilraun fyrir okkur því við getum hugsað okkur að færa út kvíarnar í smásölu víðsvegar um heim.“

    „Harklinikken hefur skapað sér orðspor á meðal vönduðustu og virtustu hárþjónusta í heiminum og þessi nýja hugmyndafræði er sú fyrsta hjá vörumerkinu og gerir fleira fólki kleift að upplifa hinar áhrifaríku hárvörur. Áður hefur vörumerkið takmarkað aðgengi að vörum sínum við þá sem vísað hefur verið í meðferð við hárlosi, sem felur í sér ákveðin sjampó, hárnæringu og seyði sem sniðið er að hverjum og einum viðskiptavin. Hjá nýja útibúinu geta íslenskir neytendur og ferðamenn fræðst um Harklinikken og prófað vörur þess án þess að hafa fengið ráðgjöf, en það er gjörbreyting hjá vörumerkinu,“ segir í fréttatilkynningunni.

    Í henni segir jafnframt að í versluninni muni hársérfræðingar Harklinikken starfa, sem allir séu þrautþjálfaðir í að finna vandamál í hári og hársverði og þjónustu við viðskiptavini. Þessir sérfræðingar geti beint viðskiptavinum að vörum sem henti hverju sinni og byggt þannig á hefð Harklinikken fyrir einstaklingsmiðaðri og persónulegri þjónustu, sem skapað hafi vörumerkinu sérstöðu á markaði. Auk þess að fræða neytendur um vöruna geti þeir einnig veitt þeim ráðgjöf sem líti við án þess að hafa bókað og hafi áhuga á sérvalinni meðferð við hárþynningu í einu af meðferðarherbergjum nýja útibúsins.

    „Í 186 fermetra rýminu verður einföld norræn lúxushönnun í hávegum höfð, vandlega valin til þess að rýmið veiti nýjum sem núverandi viðskiptavinum fyrsta flokks upplifun. Með notkun bestu efnanna á borð við ítalskan marmara og danska eik var allt hannað og handgert sérstaklega fyrir þetta útibú af arkitektum í Kaupmannahöfn,“ segir í niðurlagi tilkynningarinnar."

    Are you in the right place?

    Please choose your shop

    Iceland
    ×

    It's more than hair. It's you