Shopping cart .innerHTML = '(' + (0) pcs

    Covid-19 hefur ekki aðeins haft neikvæð áhrif á heilsu okkar og almenna velferð, heldur hefur faraldurinn einnig ýtt hári okkar að þolmörkum og leitt til mikillar fjölgunar á körlum og konum sem upplifa hárþynningu í kjölfar sýkingar. Þetta er ekki bein afleiðing af veirunni. Rannsóknir benda til þess að Covid-19 ráðist ekki á hársekkina og hárlos er ekki viðurkennt eins og stendur sem einkenni sjúkdómsins sjálfs. Hárlosið sem verður er oft afleiðing af sálrænu og tilfinningalegu álagi sem fylgir kórónaveirunni. Og hver finnur ekki fyrir meira álagi vegna faraldursins?

    Í hvert skipti sem líkaminn verður fyrir álagi beinir hann orkunni í lífsnauðsynlega virkni eins og að gróa og gera við sjálfan sig, frekar en að láta nýtt hár vaxa. Telogen effluvium (TE) er hárloskvilli sem verður þegar fleiri hár en venjulega fara í dvalarfasa (telogen) í hárvaxtarferlinu á sama tíma. Að jafnaði missum við um 20-100 hár á hverju degi. TE stóreykur þetta magn. Röskunin getur kviknað í kjölfarið á líkamlegu áfalli, þar með talið stórum aðgerðum, meðgöngu og fæðingu, ásamt undirliggjandi sjúkdómum, svo að við mælum alltaf með því að þú farir til heimilislæknis eða húðsjúkdómalæknis til að útiloka aðrar orsakir. Ennfremur kunna einstaklingar sem upplifa langvarandi einkenni eftir að þeir veikjast af Covid-19, ásamt þeim sem hafa aldrei sýkst af veirunni, að upplifa aukið hárlos að jafnaði um þremur mánuðum eftir sýkingu.

    „Mikilvægt er að athuga að álag eitt og sér veldur ekki hárlosi. Hins vegar getur það sannarlega leitt til hormónabreytinga sem eru síður en svo góðar fyrir okkur (og hárið) og valda hárlosi og hárþynningu. Álag tekur oft stjórnina í lífinu og hefur einnig áhrif á okkur á margan hátt. Við fáum minni svefn, borðum óhollt, drekkum meira alkóhól, reykjum fleiri sígarettur en vanalega – allir þessir þættir geta sett af stað keðjuverkun og hraðað hárþynningu,“ segir Lars Skjøth, stofnandi og aðalrannsakandi Hårklinikken. 

    „Margir hafa verið í útgöngubanni svo mánuðum skiptir, verið með börn í heimakennslu eða eru kannski að missa starfið eða fyrirtækið. Þessar sálrænu afleiðingar, allt frá takmörkunum stjórnvalda til þess einfaldlega að hafa áhyggjur af framtíðinni, þýða að þegar einstaklingar sýkjast af veirunni hafa þeir þegar orðið fyrir áhrifum af öðrum álagsþáttum og kunna að verða fyrir meira hárlosi en ef allt hefði verið eðlilegt fram að því,“ segir Lars og telur að ásamt hugsanlegum hormónabreytingum kunni skortur á nauðsynlegum næringarefnum einnig að auka á vandann. „Að sjálfsögðu skoðum við þetta hjá hverjum einstaklingi fyrir sig þar sem kyn, þjóðernislegur bakgrunnur, hvar þú býrð, lífsmáti og daglegar venjur hafa allir sitt að segja.“ 

    Sem betur fer er TE tímabundið. Í flestum tilfellum mun hárið á endanum fara aftur að vaxa, þó að það geti tekið einhvern tíma áður en það hefur náð upprunalegu heilbrigði sínu. Til að hjálpa hárinu að ná fyrra heilbrgði hefur Hårklinikken þróað meðferð sem er sérstaklega ætluð fyrir þessa gerð hárþynningar. Extractið inniheldur marga einstaka þætti sem eru fullir af næringarefnum, sem virka fullkomlega með fjölda annarra öflugra innihaldsefna og vinnur að því að snúa álagstengdri hárþynningu til baka. Þar sem formúlan er séraðlöguð að notandanum og stöðugt stillt á vegferð viðskiptavinarins, má sjá merkjanlegan mun á áferð og magni hárs eftir aðeins tveggja mánaða notkun. Þegar hún er notuð ásamt sérstökum hársápum og rakagefandi vörum frá Hårklinikken verða áhrifin jafnvel enn meiri.

    Are you in the right place?

    Please choose your shop

    Iceland
    ×

    It's more than hair. It's you