Shopping cart .innerHTML = '(' + (0) pcs

    Margar konur verða fyrir hárþynningu á ólíkum aldri í lífinu, en margar konur telja einnig að þær hafi þunnt hár frá náttúrunnar hendi og að það hafi alltaf verið þannig.

    Á meðan hárþynning er almennt ágengari hjá karlmönnum, þar sem hún sést oft við gagnaugun og á hvirflinum, er ferlið mun meira hægfara og ósamfelldara hjá konum. Vegna hins ósamfellda ferlis við hárþynningu kvenna, þar sem hársekkirnir skreppa smátt og smátt saman með sérhverri nýrri kynslóð af hári, taka konur almennt ekki eftir að hárið sé farið að þynnast fyrr en mörgum árum eftir að ferlið hefst. Hárþynningarferlið fer yfirleitt af stað með hormónabreytingum sem geta jafnvel hafist á unglingsaldri, þannig að konur sem taka eftir því að hárið sé að þynnast við 35 ára aldur kunna að hafa verið með stöðuga hárþynningu allt frá 15 ára aldri. Þegar konur taka fyrst eftir því að hárið sé farið að þynnast leita þær oft fyrirbyggjandi lausna. En konur sem hafa verið með þunnt hár síðan að þær komust á fullorðinsaldur eru líklegri til að telja að þær hafi alltaf verið með þunnt hár og muni alltaf vera með þunnt hár.

    Hins vegar hafa þessar konur í flestum tilfellum rangt fyrir sér. Þegar þær sjá myndir af sjálfum sér á unglingsaldri er hárið hugsanlega heilbrigðara og þykkara á myndunum en það er núna. Reyndin er sú að hugsanlega er hárið fíngert frá náttúrunnar hendi, en með tímanum hefur fíngert hárið orðið enn þynnra. Góðu fréttirnar eru þær að jafnvel fíngert hár getur orðið þykkt og mikið með réttu nálguninni að heilbrigði hársins. Það er virkilega til leið til að stöðva hárþynningu.

    Það sem gerist með tímanum í hársekkjunum
    Viðskiptavinir segja okkur oft hvernig þeir hafa alltaf verið með fíngert hár. Þó er raunin oft sú að hárið hefur verið að þynnast svo hægt og svo stöðugt í lengri tíma, að þeir hafa ekki tekið eftir hversu mikið það hefur breyst. Það sem gerist er að hársekkirnir eru smám saman að smækka, sem þýðir að þvermál þeirra dregst saman og þeir verða grynnri og færast þar af leiðandi nær yfirborði hársvarðarins með sérhverri nýrri kynslóð af hári. Áður gat hver hársekkur kannski framleitt 3-4 þykk og heilbrigð stök hár en núna geta þeir hugsanlega aðeins framleitt 1-2 stök hár, sem veldur því að hárið verður þynnra. Um leið og þvermál hársekkjanna dregst saman minnkar þvermál hvers hárs sem þeir framleiða, sem gerir hárið stökkara svo að það slitnar frekar. Minna þvermál hefur í för með sér að hársekkirnir geta ekki haldið nærri jafnmiklum raka né melaníni, sem gerir hárið þurrt og slitið.

    Vandamálið er að hársekkirnir eru að dragast saman.

    Jafnvel þó að þú teljir að þú munir hafa þunnt hár ævina á enda mælum við með því að þú bókir ráðjöf hjá Harklinikken; sérfræðingar okkar munu leggja mat á hársvörð þinn og skipuleggja ókerfisbundna og alfarið staðbundna meðferð sem er ekki ífarandi, til að endurheimta heilbrigði hársvarðarins og hársins, óháð því hvort hárið sé nýfarið að þynnast eða þér finnist það alltaf hafa verið þunnt.

    Magn af daglegu hárlosi
    Ein af leiðunum til að sjá hvort hárið sé að þynnast er hvað það losnar í miklu magni. Samkvæmt American Academy of Dermatology er eðlilegt að losa á milli 50 til 100 hár hvern dag. En margir eru einnig með miklu meira hárlos en þetta án nokkurra vandamála.

    Þegar hárþynning er til staðar kunna konur að losa meira en meðalfjölda hára á dag. Margar ástæður geta verið fyrir þessu, þar með talið vandamál í ónæmiskerfi, viðbrögð við nýjum lyfjum eða notkun á skaðlegum hárvörum. Ef þú ert í vafa um hvort að hárlos þitt sé af eðlilegu magni getur hársérfræðingur aðstoðað þig. Hann leggur mat á ástandið og fyllir þig fljótlega sjálfstrausti varðandi ástand hárs þíns.

    Lausnirnar
    Oft er rætt um þunnt hár og hárþynningu sem gjörólík vandamál, en lausnirnar geta verið þær sömu í mörgum tilvikum. Sama hvort hár þitt sé að þynnast eða þér finnst það alltaf hafa verið þunnt, var Extractið okkar hannað bara fyrir þig þar sem það styrkir hársekkina svo að hárið verður þykkara og fallegra. Þegar þú hefur fengið staðfestingu á því að þú komir vel til greina fyrir Extract meðferðina okkar munum við hjálpa þér að koma á nýjum venjum við umhirðu hársins sem virka með Extractinu. Með þessari meðferð hefur þú vegferð þína í áttina að þykku og heilbrigðu hári, jafnvel þó þú hafir ekki trúað því að það væri hægt.

    Are you in the right place?

    Please choose your shop

    Iceland
    ×

    It's more than hair. It's you