Leiðbeiningar, hvernig taka á myndir fyrir fyrstu ráðgjöf á netinu
Til að fá sem besta lýsingu er best að taka myndirnar úti í dagsbirtu eða á móti glugga.
Þegar þú tekur myndir þarf hár þitt að vera alveg þurrt, hreint og án allra aukaefna.
Fyrir fyrstu ráðgjöf þá þurfum við eftirfarandi fjórar myndir.
SKREF 1: AÐ FRAMANVERÐU
Byrjaðu á því að halda símanum í armslengd fyrir framan þig og taktu myndir af andliti þínu og hári.
SKREF 2: SKIFTINGINN
Skiftu hárinu lauslega í miðju efst á höfðinu.
Gætið þess að toga ekki í hárið, skiptingin ætti að vera laus svo að við getum ákvarðað þéttleika og þykkt hársins.
SKREF 3: BÆÐI KOLLVIKIN
Lyftu hárinu upp hjá kollvikunum, líka litlu hárunum þar sem hárið er þynnra og taktu myndir.
Mundu að taka myndir af bæði hægra og vinstra kollviki.
SKREF 4: VAL Á MYNDUM
Skoðaðu myndirnar og veldu þær bestu í samræmi við eftirfarandi þætti:
1. Dagsbirta (það er nóg ljós á myndinni en myndin er ekki oflýst)
2. Skerpa (ljósmyndagæði eru góð og myndin er ekki pixluð)
3. Rétt fjarlægð (símanum er haldið um það bil 20-30 cm frá hársverðinum)
4. Rétt sjónarhorn (myndirnar sýna glöggt sjónarhornin sem nefnd eru hér að ofan)
FRÁBÆRT OG VEL GERT !