Shopping cart .innerHTML = '(' + (0) pcs

    Hvernig umhirðu á þurrum hársverði er háttað
    Hársvörðurinn er líkt og viðkvæmt vistkerfi, eða líffræðilegt umhverfi, sem krefst umhyggju og markvissrar hreinsunar. Þegar þú vanrækir umhirðu hársvarðarins verða truflanir á viðkvæmu vistkerfinu og þurrleiki, kláði og erting geta komið fram í hársverðinum. 

    Vanræksla við umhirðu hársvarðar og hárþynning
    Þegar mikil röskun verður á umhverfi í lengri tíma getur aukin hárþynning komið fram hjá fólki með heilbrigt hár. Stöðug umhirða hársvarðarins er áskilin til að hafa stöðugt fagurt, gljáandi hár og til að sporna gegn hárþynningu hjá konum. Þegar þú sinnir ekki umhirðu hársvarðarins er aukin hætta á ertingu, roða, sýkingum og bólgum. 

    Slík einkenni eru aðeins hluti af afleiðingum þess að vanrækja umhirðu hársvarðarins. Þegar ójafnvægi verður á vistkerfi hársvarðarins aukast líkurnar á hárþynningu. Þurr hársvörður kann að koma í veg fyrir hárvöxt vegna þess að smágerðar húðagnir stífla hársekkina. Þegar hársekkirnir stíflast safnast upp húðfita sem takmarkar hárvöxt enn frekar og veldur því að hárið verður þynnra. Þurr hársvörður kann einnig að valda ertingu og aukin tilhneiging verður til að klóra í hársvörðinn til að lina kláðann. Slíkt klór getur skaðað hársekkina og einnig stuðlað að hárþynningu.

    Ætti ég að láta afeitra hársvörðinn?
    Harklinikken varar við afeitrunarmeðferðum fyrir hársvörð vegna þess að slíkar meðferðir innihalda iðulega sterk innihaldsefni sem hafa meiri ókosti en kosti í för með sér fyrir viðkvæma húð hársvarðarins. Þegar þú telur þig þurfa á afeitrunarmeðferð að halda skaltu forðast gróft skrúbb en slíkt skrúbb getur valdið skemmdum neðst á hárlokkunum og á þann hátt dregið úr styrkleika, gljáa og fegurð þeirra. Afeitrunarmeðferðir geta þar að auki raskað viðkvæmu vistkerfi hársvarðarins annað hvort með því að auka þurrleika, eða valda uppsöfnun olíu og húðfitu á hársekkjunum. 

    Hvaða hársápu ætti ég að nota við þurrum hársverði?
    Lars Skjoeth er stofnandi og aðalrannsakandi Harklinikken og hann hefur með þrotlausri vinnu sinni náð að blanda bestu hársápu sem völ er á fyrir hársvörðinn. Hann beitir við vinnu sína heildrænni nálgun til að búa til efnablöndur sem endurnæra hársekki með framúrskarandi árangri. 

    Balancing Shampoo frá okkur er spennandi ráð fyrir alla sem vilja bæta úr umhirðu hársvarðarins eða líkamsumhirðu almennt og hefja umhirðu hársins í nýjar hæðir. Hársápan er mild efnablanda sem gefur hárinu kraft og kemur jafnvægi á pH-gildi hársvarðarins. Hárið endurnýjast, hreinsast og losnar við allar takmarkanir sem fylgja mjög þurrum hársverði. 

    Efnablanda Balancing Shampoo frá okkur er viðurkennd og ráðlögð af húðlæknum um allan heim. Sérfræðingar mæla með slíkri meðhöndlun á þurrum hársverði vegna einstakra eiginleika efnablöndunnar til að meðhöndla flösu og húðbólgu. Hársvörðurinn endurnærist og kemst aftur í náttúrulegt og heilbrigt horf. Um leið dregur úr vanmætti þínum andspænis hárþynningu og þú upplifir fegurðina á ný að utan sem að innan. 

    Bjóðast aðrar leiðir við að auka heilbrigði hársvarðarins?
    Við mælum með notkun Harklinikken-hársápunnar og rakagefandi meðferðarinnar okkar sem innihalda framúrskarandi efnablöndur og úrvals innihaldsefni til að hreinsa hársvörðinn og veita frábæra hárumhirðu. 

    Við mælum einnig með Extractinu okkar fyrir alla sem vilja leggja rækt við og hirða vel um hársvörðinn. Þessi sérblandaða lausn fyrir hársvörðinn er handgerð úr hreinum innihaldsefnum og náttúrulegum hráefnum. Henni er blandað handvirkt eftir þörfum hvers og eins til að endurnæra bæði hárið og hársvörðinn. 

    Are you in the right place?

    Please choose your shop

    Iceland
    ×

    It's more than hair. It's you